ITEI1GB05 - Iðnteikning háriðna 1

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandinn kynnist grunnþáttum í teikni-, lita- og formfræðum. Teiknuð verkefni með mismunandi blýjum og aðferðum. - teiknuð andlit og hárgreiðslur sem byggja á reglu gullinsniðs. Litafræði Ittens kynnt. - gerður samanburður við litastjörnu í hári og verkefni unnin sem tengjast bæði litafræði og hársnyrtinámi. Formfræði skoðuð og sett í samhengi við klippingar og greiðslur. Nemandi þjálfaður í efnis-, upplýsinga- og heimildaöflun, auk varðveislu gagna. Lagður grunnur að námsbók sem sýnir verkefnavinnu og námsframfarir nemanda.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi blýjum og teikniaðferðum
  • fjarvídd og skyggingum
  • gullinsniði
  • litafræði Itten
  • grunnformum
  • mismunandi leiðum og nálgun á heimildaleit og varðveislu gagna
  • námsbók


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja eiginleika mismunandi blýja
  • skyggja og ná fram fjarvídd í teikningu samkvæmt fyrirmynd
  • nýta gullinsniðsregluna í teikningu og formfræði
  • leita að og varðveita gögn og heimildir hvort sem er á veraldarvefnum eða með hugmyndabók
  • safna gögnum og setja upp í námsbók


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skynja og sjá tengsl milli þess sem hann sér sem fyrirmynd og verkefna sem unnin eru
  • ná fram áhrifum, formútfærslum og formgerðum ásamt áferðum fyrirmyndar í verkefnum með mismunandi aðferðum
  • geta valið sér ákjósanlega leið í varðveislu gagna og framsetningu á efni, bæði á rafrænu og áþreifanlegu formi