ÍSLE3MV05 - Íslenska - Málvísindi
Undanfari : 10 einingar á 2. þrepi
Í boði
: Haust
Lýsing
Málvísindaáfangi þar sem tekið er á uppbyggingu íslenskunnar. Þróun málsins er skoðuð svo og beyginarkerfið, hljóðfræðin, orðmyndunin, setningaskipan og ásamt máltöku barna. Áherslan er lögð á að skoða málið og rannsaka eins og það er á 21. öldinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu íslensks nútímamáls
- mismunandi orðanotkun fólks á ólíkum tímum
- beygingar-, hljóð- og setningafræði íslenskunnar
- helstu aðferðum við nýmyndun orða
- grunnatriði málsögu, málfkerfis og orðaforða íslenskunnar
- ritgerðarsmíð og heimildavinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita málvísindalegum hugtökum til rannsókn
- vinna með öll helstu hugtök málfræði, setningafræði, hljóðfræði og orðmyndun
- nýta málfræðihugtök af öryggi í umræðu um málið, þróun þess, menningu og sögu
- flytja af öryggi og sannfæringarkrafti ítarlega kynningu á flóknu efni, s.s. niðurstöður og rannsókn á íslensku máli
- skrifa ritgerðir þar sem beitt er gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og frágangs texta
- koma efni á framfæri á skýran og vandaðan hátt á blæbrigðaríku máli
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna með málkerfið í heild og geti greint nýjungar og breytingar á málinu og útskýrt þær út frá málvísindalegum forsendum
- beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
- rannsaka málið á gagnrýninn og fordómalausan hátt
- skrifa skýran og vel uppbyggðan texta sem byggir bæði á rannsóknum og heimildum
- taka virkan þátt í umræðum og tjá rökstudda afstöðu
- geta kynnt rannsóknarniðurstöður, ályktanir og ígrundanir