ÍSLE2BR05 - Íslenska - Bókmenntir og ritun
Undanfari : B úr grunnskóla eða undirbúningsáfangi
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áfanginn byggist upp á lestri ólíkra texta frá ýmsum tímabilum og ýmiskonar ritun. Áhersla er lögð á að nemendur efli málfærni sína og lesskilning með því að lesa og skrifa mismunandi texta. Þá kynnast nemendur norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Mikil áhersla verður lögð á að nemendur lesi texta sér til ánægju og stuðli þannig að aukinni lestrarfærni og túlkun. Í áfanganum verða nemendur þjálfaðir í ólíkum gerðum ritsmíða bæði skapandi skrifum og nytjatextum. Farið er í helstu hugtök bókmenntafræðinnar og hvernig á að beita þeim við lestur og túlkun texta.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum bókmenntafræðinnar í umfjöllun um texta
- mikilvægi lesturs og lesskilnings
- uppbyggingu og framsetningu mismunandi texta
- mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til gagns og ánægju
- lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
- nota bókmenntafræðileg hugtök við greiningu og túlkun texta
- semja mismunandi texta þar sem gagnrýninni og skapandi hugsun er beitt
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa og túlka texta sér til gagns og ánægju
- beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- tengja íslenska tungu og menningarheim við fortíð og samtíð