ÍSAN2SS05 - Íslenska sem annað mál - Að segja sögur

Undanfari : Lokið a.m.k. 2 áföngum í ÍSAN
Í boði : Alltaf

Lýsing

Nemendur kynnast lestri smásagna og geti rætt sögur sem þeir lesa út frá hugtökum bókmenntafræðinnar. Halda lestrardagbók og læra helstu verkfæri til að skrifa sjálf sögur. Nemendur kynna sér einnig stuttmyndir og ræða hvað er sameiginlegt með stuttmyndum og smásögum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu einkennum smásagna
  • helstu einkennum stuttmynda
  • aðferðum og leiðum við að semja og segja sögu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig munnlega um efni og einkenni smásagna og stuttmynda
  • skrifa smásögu

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita tungumálinu á viðeigandi hátt
  • tjá rökstudda afstöðu sína til efnis og boðskapar
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýnni hugsun við lestur og túlkun og úrvinnslu texta