ÍSAN2KV05 - Íslenska sem annað mál - Íslenskt samfélag í kvikmyndum
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Að nemendur kynnist íslensku samfélagi frá því um 1960 - 2018 eins og það birtist í íslenskum kvikmyndum. Skoði og skilgreini þann menningarheim í ljósi fortíðar og nútíðar. Nemendur horfa á fimm til sjö íslenskar kvikmyndir. Meginmarkmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir þeim samfélagsbreytingum sem átt hafa sér stað á Íslandi undanfarin 60 ár. Að athuga sérstaklega hvernig þessar breytingar hafa áhrif á einstaklinginn í samfélaginu með því að horfa á íslenskar kvikmyndir sem gerast á árunum uppúr 1960 til dagsins í dag. Námið byggir á virkri þátttöku nemenda þar sem þeir vinna verkefni í tengslum við hverja mynd og athuga trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- íslensku samfélagi
- breytingum á íslensku samfélagi og áhrifa á einstaklinginn
- íslenskri tungu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða og skilgreina menninguna sem birtist í kvikmyndunum
- meta trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils
- tjá sig á íslensku, bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja íslenskt samfélag
- taka þátt í umræðu um íslenskt samfélag
- verða öruggari samfélagsþegn