IÐTE1VB04(AV) - Iðnteikning 1 - Fríhendisteikning, grunnur
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti. Í fyrri efnisþætti er fjallað um fallmyndun, en í þeim seinni flatarteikningu og yfirborðsútflatninga. Gert er ráð fyrir að nemendur öðlist færni í lestri og gerð vinnuteikninga, gerð flatarmynda og útflatninga. Nemendur skulu öðlast færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestri teikninga og fá grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og útflatninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir fagbundið nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautar-lýsingunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- upplýsingamiðlun og tæknilegum teikningum
- hornréttum fallmyndum ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum
- málsetningu og hlutföllum teikning
- þrívíðum teikningum og sönnum stærðum skurðflata
- reglum, stöðlum og venjum sem gilda um vinnuteikningar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota teikni- og mæliáhöld.
- gera vinnuteikningar með teikniáhöldum af einföldum hlutum með hornréttum fallmyndum og sneiðmyndum
- hugsa af nákvæmni um og vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina, s.s. hönnunar og iðngreina
- gera útflatningsmyndir og finna raunstærðir skurðarflata á sívalningum, keilum og fleiri þrívíðum formum
- skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa teikningar
- vinna einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og einfaldar þrívíðar teikningar
- finna sannar stærðir útflatninga og teikna þrívíð form og finna sannar stærðir skurðarflata
- undirbúa sig fyrir fagbundið teikninám og annað fagnám starfsgreina, s.s. hönnunar- og iðngreina