HÚSV3HU05 - Húsaviðgerðir og breytingar
Undanfari : HÚSA3ÞÚ09
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um viðgerðir og breytingar á eldri byggingum og mannvirkjum úr tré og steini. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að varðveita byggingarsöguleg gildi húsa á sama tíma og reynt er að koma til móts við kröfur nútímans um endingu, þægindi og brunavarnir með hliðsjón af lögum og reglum. Farið er yfir greiningu á fúa‐ og steypuskemmdum, endurnýjun á burðarvirkjum, klæðningum, gluggum, hurðum og öðrum byggingarhlutum. Jafnframt lærir nemandinn um algenga breytingavinnu svo sem endurnýjun á gleri, smíði viðbygginga og breytingar á þökum. Kennslan er aðallega bókleg en einnig verkleg þar sem við á. Lögð er áhersla á minni verkefni og sýnikennslu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögum og reglugerðum um húsafriðun og breytingar á húsum
- endurnýjun og viðhaldi á mannvirkjum
- öryggi og öryggisbúnaði við viðgerða‐ og breytingavinnu
- byggingarsögu og -gildi tré‐ og steinhúsa á Íslandi
- notkun bárujárns í klæðningar hérlendis
- mismunandi eiginleikum byggingarefna
- byggingarsögulegu gildi húsa og mannvirkja
- mikilvægi brunavarna við viðgerðir og endurnýjun
- skemmdum af völdum sveppa og skordýra í tré svo og afleiðingum tæringar í málmi
- orsökum og afleiðingum tæringar og veðrunar á málmum
- málun og viðhaldi bárujárnsklæðninga
- smíði viðbygginga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina algengustu skemmdir á tré, steinsteypu og málmi utanhúss
- gera við trévirki án þess að rýra burðargetu þess
- byggja upp og viðhalda bárujárnsklæðningum og festingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina steypuskemmdir og meta umfang þeirra í grófum dráttum
- framkvæma tæknilegar útfærslur á tengingu eldri og nýrra byggingarhluta
- leggja mat á afleiðingar mismunandi lausna fyrir varðveislugildi mannvirkja