HÚSA3HU09 - Timburhús 1 - Gólf- og veggjargrind
Undanfari : TRÉS1VT08
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er kennd smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðar- og milliveggi. Farið er í klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga, hurða, stiga og innréttinga auk almenns frágangs. Meðal þess sem tekið er fyrir er útfærsla einstakra byggingarhluta, efnisval og staðsetning á stoðum og hvernig á að koma fyrir einangrun og rakavörn. Áfanginn er að mestu verklegur þar sem nemendur fá þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga, yfirborðsmeðferð, öryggis- og gæðamálum m.m. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna með öðrum í hóp
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu berandi timburveggja
- smíði gólf- og hæðaskila í timburhúsi
- uppbyggingu eldvarnarhólfa
- stífingu timburhúsa
- yfirborðsmeðferð smíðaviðar
- mismunandi undirstöðum fyrir timburhús
- algengum útfærslum á undirstöðum (úr steini og tré)
- festingum gólfvirkis við sökkul- eða súluundirstöður
- stífingu og afréttingu gólfbita
- stífingum á grindarveggjum, staðsetningu stoða og festingar
- algengustu útfærslum á loftræstum timburklæðningum á útveggi
- uppsetningu á vindvörn og klæðningagrind og reglur um loftun
- frágangi á borðaklæðningum í kringum veggop og á hornum og brúnum
- uppsetningu lagnagrindar og afréttingu hennar
- gólfklæðningum á gólfbita með tréborðum og gólfplötum
- yfirborðsmeðferð timburs
- hvernig á að smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
- smíði steypumóta fyrir stiga
- eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar- og klæðningakerfa
- mismunandi festingakerfum og afréttingu þeirra
- áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppsetningu grindar og klæðningar
- muninum á hefðbundnum steypumótum og flekamótum
- smíði hefðbundinna steypumóta fyrir einstaka byggingarhluta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- smíða gólfvirki og hæðaskil með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
- greina algengar útfærslur á undirstöðum úr steini og tré
- greina helstu aðferðir og efni til að verja tré gegn fúa og veðrun
- ganga frá hurðum og gluggum í timburhús
- velja áhöld og tæki til uppsetningar á grind og klæðningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka tréundirstöður í rétta hæð fyrir dregara og stífa af
- smíða létta innveggi og berandi útveggi úr tré
- smíða létta innveggi og berandi útveggi með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
- smíða þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum
- smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
- klæða útveggi með liggjandi og standandi timburklæðningu
- klæða útveggi með borðaklæðningu í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
- einangra og klæða gólf og veggi innanhúss
- koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi
- setja upp útihurðir og glugga, glerja og ganga frá bæði að utan og innan
- stilla af karma og festa með tilheyrandi þéttingum
- glerja og ganga frá með tilheyrandi listum, áfellum og gerektum
- setja upp innréttingar og tréstiga og ganga frá listum í kverkar m.m.
- koma fyrir gluggum, hurðum og öðrum íhlutum í steypumót