HPEM2GB02 - Permanent 2

Undanfari : ?HPEM1GB02
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi fær frekari þjálfun í gerð verklýsinga og öðlast aukna leikni í upprúlli á permanenti með ólíkum spólugerðum. Gerðar eru auknar kröfur varðandi hraða og vandvirkni. Farið er í ýmis permanentefni og vinnuaðferðir og kennd greining hárs. Unnið áfram með hárþvott og mismunandi tegundir næringarnudds. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi tegundum permanentefna og notkun þeirra
  • gerð verklýsinga í permanenti
  • mismunandi tegundum höfuðnudds


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • framkvæma mismunandi upprúll fyrir permanent með tilliti til útkomu
  • velja og nota ýmsar spólugerðir með tilliti til útkomu
  • gera spjaldskrár og verklýsingar
  • framkvæma hárþvott og höfuðnudd


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meðhöndla hárið á viðeigandi hátt fyrir og eftir meðferð
  • rúlla upp a.m.k. þremur tegundum mismunandi permanents
  • nota verklýsingar sem fyrirmynd verks