HPEM2FB02 - Permanent 4

Undanfari : ?HPEM2GB02
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi fær þjálfun og öðlast leikni í hönnun og ísetningu á permanenti miðað við fyrirhugaða útkomu. Kennd er greining hárs og meðferð ýmissa tegunda af permanentefnum og sléttunarefnum. Unnið er áfram með verklýsingar. Verkefnin eru unnin á æfingarhöfði og módelum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • útfærslu permanents samkvæmt verklýsingu og óskum viðskiptavina
  • ýmsum gerðum permanent- og sléttiefna sem unnið er með
  • að taka tillit til líffræðilegra þátta við hönnun meðferðar
  • vali á spólugerð með hliðsjón af útkomu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera verklýsingar og spjaldskrár
  • framkvæma mismunandi upprúll fyrir permanent með tilliti til útkomu
  • setja permanent og sléttun í ýmsar síddir af hári með ólíkum aðferðum
  • greina hár og velja viðeigandi efni


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • ráðleggja viðskiptavini um val og meðhöndlun á permanenti eða varanlegri sléttun
  • greina ástand hárs og velja viðeigandi efni
  • meðhöndla hárið á viðeigandi hátt fyrir og eftir meðferð
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis