HPEM1GB02 - Permanent 1

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi kynnist grunnatriðum permanents og fær þjálfun í að gera skiptingar og rúlla upp nokkrum gerðum upprúlls. Farið er í smitvarnir og öryggisatriði. Kennd eru grunnatriði hárþvottar og næringarnudds. Einnig eru nemendum kynntar verklýsingar fyrir permanent og þeir fá grunnþjálfun í gerð þeirra og að fara eftir þeim. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnskiptingum fyrir permanentupprúll
  • mismunandi spólustærðum og gerðum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera grunnskiptingar fyrir upprúll
  • gera upprúll á heilt höfuð
  • búa til verklýsingar fyrir permanent


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda á greiðu á sama tíma og rúllað er upp
  • að nota endapappír rétt
  • ná jafnri spennu á hári frá rót að enda
  • taka skiptingar í samræmi við spólustærð og fyrirhugaða útkomu