Lýsing
Nemandinn öðlast aukna færni í litun fyrir dömur og herra og þjálfast í að bera lit í hár innan ákveðins tímaramma. Þekking og færni við ólíkar aðferðir í litatækni og strípulitun er efld. Kynnt er litaleiðrétting auk forlitunar og þjálfuð gerð verklýsinga og að vinna út frá þeim. Unnið er með æfingahöfuð og módel.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tilgangi forlitunar og aðferðum við hana
- ólíkum aðferðum við litun s.s. heillitun, partalitun og strípulitun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina náttúrulit viðskiptavinar út frá litaspjaldi, velja og blanda hárlit samkvæmt því
- blanda saman ólíkum aðferðum við hárlitun
- blanda liti til litaleiðréttingar
- vita hvenær forlitunar er þörf
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina náttúrulit viðskiptavinar út frá litaspjaldi, velja og blanda hárlit samkvæmt því
- blanda saman ólíkum aðferðum við hárlitun
- þekkja liti til litaleiðréttingar og forlitunar