HLIT2GB01 - Hárlitun 2

Undanfari : ?HLIT1GB01
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandinn æfist í að bera lit í hár og kynnist ólíkum aðferðum við litatækni s.s. partalitun og mismunandi stríputækni. Dýpkaður skilningur á gerð og nýtingu litaverklýsinga. Unnið er með hártoppa og æfingahöfuð.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • a.m.k. þremur tegundum hárlitunarefna
  • notkun litaspjalda
  • mismunandi gerðum lita s.s. varanlegum og hálfvaranlegum
  • gerð verklýsinga
  • mismunandi þekju og virkni lita


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina náttúrulit út frá litaspjaldi, velja og blanda hárlit samkvæmt því
  • bera lit/skol í heilt höfuð
  • framkvæma mismunandi gerðir strípulitana


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja og bera lit í hár
  • velja mismunandi tækni til litunnar
  • velja mismunandi styrkleika/þekju litar
  • fara eftir þar til gerðum verklýsingum um lit