HLIT1GB01 - Hárlitun 1

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandinn lærir um lögmál litanna og einkenni þeirra og fræðist um helstu áhöld og efni sem notuð eru til hárlitunar. Farið er í litafræði og kennt að lesa á liti. Kennd eru grunnatriði á íburði litar s.s. litur í rót, heillitur og strípur og gerð litaverklýsinga. Lögð er áhersla á mikilvægi smitvarna og helstu öryggisþátta. Unnið er með hártoppa og æfingahöfuð.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ýmsum hugtökum sem tengjast litafræði og litun
  • litaspjöldum og notkun þeirra
  • grunnlitum og blöndunarlitum
  • notkun og umhirðu áhalda sem notuð eru við hárlitun
  • gerð litaverklýsinga og tilgangi þeirra
  • helstu smitleiðum og öryggisþáttum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina náttúrulit viðskiptavinar út frá litaspjaldi
  • blanda hárlit samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
  • lesa og skilja litaspjöld
  • þekkja tóna í háralit
  • gera litaverklýsingar


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja mismunandi gerðir lita eftir litaspjöldum
  • bera lit í rót og heillita hár
  • gera einfaldar strípur