HJÚK3LO03 - Hjúkrun - Lokaverkefni

Undanfari : HJÚK3FG05
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu í hjúkrun. Nemendur dýpka og þjálfa færni sína í ritun heimildaritgerða og þeim fræðilegu vinnubrögðum sem krafist er við vinnslu og frágang slíkra ritgerða. Lögð er áhersla á notkun viðurkenndra heimilda innan heilbrigðisvísinda. Nemendur vinna undir verkstjórn kennara á sjálfstæðan hátt þar sem krafist er frumkvæðis, vandaðra vinnubragða, sköpunar og ábyrgðar á eigin námi. Nemendur kynna viðfangsefni sín með margvíslegum hætti í málstofu. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tilteknu viðfangsefni í hjúkrunarfræði
  • sem hann hefur valið sér
  • helstu hugtökum sem tengjast gerð
  • heimildaritgerðar
  • byggingu heimilda- og
  • rannsóknarritgerða
  • nauðsyn þess að vanda meðferð
  • heimilda
  • reglum um höfundarrétt og
  • hugmyndum um ritstuld


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fylgja viðurkenndum reglum við gerð og frágang ritgerðar
  • beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu efnis í heilbrigðisvísindum
  • afla fjölbreyttra heimilda, t.d. skráðra heimilda úr bókum, tímaritum og af netinu eða frumheimilda, ef svo ber undir
  • koma efni á framfæri á vel uppbyggðan, skýran og greinargóðan hátt
  • lesa fræðilegan texta um heilbrigðismál á íslensku og erlendu tungumáli


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja fram rökstudda rannsóknarspurningu eða efnisyfirlýsingu
  • skrifa lokaritgerð í heilbrigðisvísindum um sérhæft efni í hjúkrun samkvæmt viðurkenndum aðferðum
  • tjá sig í ræðu og riti á gagnrýninn og skapandi hátt um sérhæft efni