HJÚK3FG05 - Hjúkrun - Samfélagshjúkrun
Undanfari : HJÚK3ÖH05
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er fjallað um hugtök og kenningar i fjölskyldu-og geðhjúkrun, ásamt heimahjúkrun og heilsugæslu. Farið er i kenningar um þroskaferil fjölskyldunnar. Þarfir og verkefni fjölskyldumeðlima á ýmsum þroskastigum. Farið er i hugmyndafræði heilsueflingar og hjúkrunarviðfangsefni í tengslum við fjölskyldu-og heimahjúkrun. Fjallað er um algengar geðraskanir, hjúkrun, forvarnir og endurhæfingu geðsjúkra með áherslu á fjölskyldumiðaða nálgun. Áhersla er lögð á að nemandinn kynnist mikilvægi geðhjúkrunar á hinum ýmsu sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Í áfanganum er lögð áhersla a tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum og kenningum í fjölskyldu- og geðhjúkrun
- hugmyndafræðiþroska- og fjölskyldukenninga
- heilsueflingu og forvörnum
- einkennum og hjúkrunarmeðferðum
- algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- túlka helstu kenningar og hugtök innan fjölskyldu- og geðhjúkrunar
- útskýra hlutverk heima- og heilsugæsluhjúkrunar
- bera saman hugmyndafræði mismunandi þroska- og fjölskyldukenninga
- vera þátttakandi í heilsueflingu og forvörnum í samfélaginu
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- túlka helstu kenningar og hugtök innan fjölskyldu- og geðhjúkrunar
- útskýra hlutverk heima- og heilsugæsluhjúkrunar
- bera saman hugmyndafræði mismunandi þroska- og fjölskyldukenninga
- vera þátttakandi í heilsueflingu og forvörnum í samfélaginu
- lýsa einkennum algengra geðraskana og fíknisjúkdóma
- nota viðurkenndar hjúkrunarmeðferðir í fjölskyldu- og geðhjúkrun