HHER2FB03 - Herraklipping 1
Undanfari : HKLI2GB03
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandinn fær þjálfun í herraklippingum á æfingarhöfði og módeli. Lögð er áhersla á form-, tísku- og snöggar herraklippingar og notkun hármótunarefna. Unnið er með klippivélum með mismunandi kömbum, þjálfuð færni í að eyða út hnakkalínu með greiðu og skærum og farið í þynningu með skærum og hníf. Verkefnin eru unnin á æfingahöfði og módelum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum
- mismunandi formum í herraklippingum
- notkun hármótunarvara
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- klippa snöggt með vél og skærum
- þynna hár með hníf og þynningarskærum
- klippa formklippingu á æfingarhöfði og módeli út frá verklýsingu
- klippa herraklippingu (enskt form) samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði og módeli
- klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum
- klippa módel samkvæmt óskum þess
- klippa snögga herraklippingu sem þynnist niður í hnakka
- klippa formklippingu
- vinna út frá verklýsingu
- ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis