HEIM3ÞV05 - Heimspeki - Þekkingarfræði og vísindaspeki
Undanfari : 50 ein., þar af minnst 20 ein. á þrepi 2 eða 3 á raunv.- eða félagsv.braut
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áfanginn er kynning á nútíma heimsmynd, þekkingarfræði og vísindaspeki. Setja skal efni og aðferðir í samhengi við þekkingu einstaklinga í nútímanum: Hver er þekking einstaklinga og hvernig má efla þá þekkingu. Hverjir eru möguleikar nútíma þekkingarumhverfis. Huga skal að tilurð, öryggi, gildissviði og tegundum þekkingar. Nemandi kynnist mismunandi rannsóknaraðferðum. Kynna skal siðfræðilegar forsendur vísinda og siðareglur vísindarannsókna. Nemandinn kynni sér ákveðna vísindagrein. Nemandinn kynnist því hvernig nútíma náttúru- og mannvísindi geta útvíkkað og dýpkað heimsmynd hans. Skoða skal hvernig vald og þekking spila saman. Huga skal að blekkingu og varhugaverðum leiðum í þekkingarleit og hvernig má vara sig á þeim. Nemendur skulu þjálfast í að beita heimspekilegri samræðu og íhugun til að efla skilning sinn utan heimspekinnar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- kenningum í þekkingarfræði
- kenningum í vísindaspeki
- nútíma heimsmynd
- aðferðafræði vísinda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- íhuga heimspekileg viðfangsefni
- ræða við aðra nemendur eða kennara
- lesa heimspekitexta
- skrifa ritgerðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera opnari fyrir nýrri þekkingu
- geta betur ígrundað þekkingu sína
- geta betur metið trúverðugleika, gildi og öryggi þekkingar