HEFR1VH05 - Heimilisfræði með áherslu á veisluhöld (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á veisluhöld og verklagi sem tengist því að undirbúa og halda veislur. Notast verður við fjölbreyttar uppskriftir og áhersla verður á mikilvægi hreinlætis við heimilisstörf.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að skipuleggja þarf afmæli og annars konar veislur með góðum fyrirvara
- að áætla þarf magn veitinga út frá fjölda gesta
- helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi
- að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
- mikilvægi hreinlætis við heimilisstörf
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útbúa innkaupalista miðað við fjölda gesta
- fara eftir uppskriftum
- taka til viðeigandi hráefni í réttum skammtastærðum
- viðhafi viðeigandi hreinlæti
- nota viðeigandi öryggisbúnað
- leggja á veisluborð fyrir réttan fjölda og mismunandi tilefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja og halda veislu
- lesa mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
- ganga frá í eldhúsi
- fara eftir almennum hreinlætiskröfum
- fara eftir almennum öryggisatriðum
Áfangi á starfsbraut