HEFR1ÞH03 - Heimilisfræði með áherslu á heimilisþrif (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á undirstöðuatriði í heimilisstörfum. Viðfangsefnið verður nálgast á fjölbreyttan hátt, farið verður í verklega æfingar ásamt því verða nemendur hvattir til að miðla reynslu sinni.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi þess að allir taki þátt í heimilisstörfum
  • helstu áhöldum, verkfærum og heimilistækjum við þrif
  • að nota hreinlætisvörur í hófi


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • sópa og skúra gólf
  • ryksuga
  • taka úr og setja í uppþvottavél
  • taka úr og setja í þvottavél
  • taka úr og setja í þurrkara
  • strauja
  • brjóta saman þvott
  • þurrka af
  • pússa gler
  • ganga frá
  • vaska upp
  • þrífa baðherbergi


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina hvenær viðeigandi er að sinna heimilisþrifum
  • gera áætlun um heimilisstörf
  • nýta sér viðeigandi heimilistæki
  • fara eftir almennum öryggisatriðum við heimilisþrif
  • þekkja og geta nýtt sér viðeigandi hreinlætisvörur


Áfangi á starfsbraut