HEFR1SS04 - Heimilisfræði með áherslu á sköpun í víðu samhengi (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi, sérstaklega sköpun í sem víðasta samhengi. Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, uppgötvun, gagnrýni, læsi, hagkvæmni, nýtingu og sköpun í daglegu lífi. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtakinu sköpun í daglegu lífi sem byggist m.a. á ímyndunarafli hvers og eins
  • hvað sköpun þýðir með tilliti til innkaupa, matreiðslu og nýtingu fæðunnar
  • mikilvægi frumkvæðis, sjálfstæðis og sköpunar í daglegu lífi
  • áhrifum sköpunar í heimilishaldi og umhverfi
  • að vinnuferlið hefur sama mikilvægi og afraksturinn
  • umburðarlyndi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
  • sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota mismunandi leiðir og aðferðir í vinnuferli sínu
  • beita fjölbreyttum aðferðum til að stuðla að eigin sköpun
  • nýta hráefni á óhefðbundinn hátt með það fyrir augum að skapa nýjungar
  • skoða eigin neysluvenjur með tilliti til breytinga og sköpunar
  • horfa á umbúðir og afganga sem tækifæri til sköpunar og nýjunga
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • ígrunda og nýta eigin hæfileika, sveigjanleika og frumkvæði til að skapa úr mismunandi hráefni með eða án skriflega leiðbeininga
  • ræða málin og vera óhæddur að leita nýrra leiða í sköpun sinni
  • vera meðvitaður um eigin neysluvenjur og geta breytt þeim á skapandi hátt
  • þekkja styrkleika sína og geta nýtt þá á jákvæðan hátt í umhverfi sínu
  • nýta mat á fjölbreyttan hátt með sköpun í huga
  • vinna með öðrum og sjálfstætt
  • vita að þekkingarleit og sköpunarferli eru ekki síður mikilvæg en svör og niðurstöður


Áfangi á starfsbraut