HEFR1SB04 - Heimilisfræði með áherslu á sjálfbærni (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi, sérstaklega sjálfbærni. Áhersla er lögð á umhverfislæsi, hagkvæmni, endurvinnslu, nýtingu, sparnað og sjálfbærni í daglegu lífi. Nemendur leysa verkefni á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtakinu sjálfbær þróun
- hvað sjálfbærni þýðir með tilliti til innkaupa, matreiðslu, nýtingu fæðunnar, flokkunar og endurvinnslu
- mikilvægi sjálfbærni í daglegu lífi og sérstöðu okkar á Íslandi
- áhrifum umgengni okkar, virðingu fyrir umhverfinu, sparnaði og sóun á matvælum
- umburðarlyndi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
- sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða eigin neysluvenjur og áhrif þeirra á eigin velferð og umhverfi
- afla sér upplýsinga um það sem viðkemur sjálfbærni
- beita aðferðum til að stuðla að eigin sjálfbærni
- flokka umbúðir og afganga á réttan hátt
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- þekkja styrkleika sína og geta nýtt þá á jákvæðan hátt í umhverfi sínu
- kaupa inn sem besta vöru með tilliti til hollustu og sjálfbærni
- skipuleggja flokkun og endurvinnslu á eigin heimili
- vera meðvitaður um eigin neysluvenjur og geta breytt þeim
- nýta mat á hagkvæman hátt með sjálfbærni í huga
- vinna með öðrum og sjálfstætt
Áfangi á starfsbraut