HEFR1HV03 - Heimilisfræði með áherslu á hádegisverð (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á fjölbreyttan hádegisverð með áherslu á hollustu og fljótlega og einfalda matargerð.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi hollrar næringar
  • fjölbreyttu fæðuvali
  • hreinlæti og frágangi við matargerð


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útbúa einfaldan hádegisverð
  • taka til viðeigandi hráefni í réttum skammtastærðum
  • viðhafa viðeigandi þrifum og hreinlæti við matargerð
  • nota viðeigandi öryggisbúnað við eldhússtörf


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér viðeigandi heimilistæki
  • útbúa fjölbreyttan hádegisverð
  • lesa mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
  • ganga frá áhöldum og hráefni sem notað hefur verið
  • fara eftir almennum hreinlætiskröfum
  • fara eftir almennum öryggisatriðum


Áfangi á starfsbraut