HDAM2FB03 - Dömuklipping 1

Undanfari : ?HKLI2GB03
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandinn fær þjálfun í klippingu á æfingarhöfði og módeli. Efld er þekking og færni í aðferðum og samsetningu á mismunandi klippiformum, auk þynningar og beitingar viðeigandi verkfæra. Nemandi lærir að velja viðeigandi hármótunarefni. Efldur er skilningur á gerð og notkun klippiverklýsinga.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum
  • mismunandi tískuklippingum og útfærslum á þeim
  • ólíkum hármótunarefnum og áhrifum þeirra


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • klippa dömuklippingu/tískulínur á æfingarhöfði og módeli út frá eigin verklýsingu
  • klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivélum
  • ráðleggja um val og form á klippingum
  • hanna eigin klippingu
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis