HBLÁ2FB01 - Hárblástur 1

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum öðlast nemandinn leikni og færni í að blása ýmsar síddir af hári á mismunandi vegu og í ólík form á æfingarhöfðum dömu og herra og á módelum. Notast er við ýmsar gerðir bursta og hitajárna í ólíkar síddir af hári. Unnið með form- og bylgjublástur herra á æfingahöfðum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • vali og notkun mótunarefna
  • þeim hitajárnum sem í notkun eru
  • mismunandi tækni við dömu og herrablástur


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • blása stífan rúllublástur í fyrirfram ákveðið form
  • framkvæma blástur eftir óskum viðskiptavinar
  • velja mótunarefni sem hæfir hárgerð viðskipavinar
  • blása form og bylgjublástur


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • framkvæma dömublástur eftir óskum módels/viðskiptavinar
  • ráðleggja viðskiptavini um val á blæstri við hæfi
  • blása hár módels/viðskiptavinar á viðeigandi hátt
  • velja mótunarefni við hæfi
  • blása/forma herra í mismunandi form
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis