HBFR1SA03 - Heilbrigðisfræði - Vélstjórn
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Í þessum áfanga öðlast nemendur þekkingu og færni til að veita skyndihjálp við bráðasjúkdómum eða slysum, geta lagt mat á ástand hins sjúka eða slasaða, geta búið um áverka og búið sjúkling undir flutning til læknis. Nemandinn á að öðlast þekkingu á innihaldi lyfjakistu, þekkja þau lyf sem þar eru, áhrif þeirra og aukaverkanir, geta gefið sýklalyf og verkjalyf og beitt lyfjagjöf í samráði við lækni. Nemandinn þarf einnig að geta búið um minniháttar sár og stöðvað minniháttar blæðingar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- á vefjabyggingu líkamans og líffærakerfi
- algengustu sjúkdómum sem skyndilega geta gert vart við sig
- réttum viðbrögð við sjúkdómum og slysum um borð
- hvaða ráðstafanir skuli gera áður en hreyft er við þeim sem hefur slasast við fall
- aðferðum við að leggja mat á ástand sjúklings
- réttum aðgerðum og viðbrögðum við slysum, svo sem líkamlegum áverka, losti, eitrunum, ofkælingu og bruna
- þeim þáttum sem huga þarf að þegar búið er um áverka
- gildi sótthreinsunar og nauðsyn þess að þvo sár og skipta um umbúðir
- líkamlegri og andlegri aðhlynningu sjúklinga eftir slys, þ.m.t. þeirra sem bjargað er úr sjávarháska
- réttum viðbrögðum við slysum um borð í skipum þar sem talið er að eiturefni hafi borist úr umbúðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita aðferðum við lífgunartilraunir, þar með talin súrefnisgjöf
- beita hjartahnoði og veita aðstoð við hjartastopp
- búa um einföldustu beinbrot til bráðabirgða
- gefa sjúklingi lyf með sprautu í vöðva
- mæla blóðþrýsting
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- veita skyndihjálp við bráðasjúkdómum eða slysum
- leggja mat á ástand hins sjúka eða slasaða
- búa um áverka og búa sjúkling undir flutning til læknis
- gefa lyf í samráði við lækni