HÁRG2GC03 - Hárgreiðsla 3
Undanfari : HÁRG2GB02
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandinn kynnist hugmyndum, tækni og aðferðum á bak við uppbyggingu og formgerð greiðslna á síðu hári. Hann lærir að blanda saman margvíslegri tækni, með notkun á rúllum, bylgjum og ýmsum hitatækjum. Kenndar verða léttar greiðslur í mismunandi hárlengdir, unnið með hnúta, slaufur, pulsur og fléttur. Kynnt verða ýmis tímabil og tískustraumar í hársögunni og kennt að útfæra greiðslur við mismunandi tækifæri með hjálp verklýsinga. Nemandi vinnur bæði með æfingahöfuð og módel.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- upprúll miðað við fyrirhugaða útkomu, bæði á síðu og stuttu hári
- mismunandi formi á bylgjugreiðslum
- notkun bylgjugreiðu og klípa
- mismunandi aðferðum við blástur
- vali og notkun mótunarefna
- notkun hitajárna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja og nota rúllur sem hæfa fyrirhugaðri útkomu og greiða hár á æfingahöfði og módeli samkvæmt fyrirfram ákveðnu formi
- gera eigin verklýsingar og fara eftir þeim við hárgreiðslu
- greiða blautbylgjur og setja í klípur
- setja klípur í heilt höfuð með eða án skiptingar
- greiða úr svo út komi bylgjur
- blása og krulla samkvæmt kennslukerfi
- beita grunntækni við gerð greiðslna. blása dömu- og herrahár eftir fyrirfram ákveðnu formi
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera skiptingar og upprúll miðað við fyrirhugaða útkomu
- framkvæma einfaldar greiðslur með tilliti til forms, áferðar og heildarútlits
- móta bylgjur í hár með blæstri, klípum og vatnsliðun
- ná tökum á sígildu formi í dömu- og herrablæstri
- framkvæma dömublástur eftir óskum viðskiptavinar
- ráðleggja viðskiptavini um val á blæstri við hæfi