HÁRG2GB02 - Hárgreiðsla 2

Undanfari : HÁRG1GB02
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandinn þekkir nú grunnaðferðir á bak við mótun hárs með hverskonar tækjum og tólum. Unnið er áfram með þjálfun á rúlluísetningu og úrgreiðslu auk klípu- og blautbylgja í fleiri útfærslum s.s. bylgjur með hliðarskiptingu og beint aftur. Blástur er þjálfaður í dömur og herra, unnið er með ólík form og hárlengdir. Sýndar eru fléttur, snúningar og gerð hnúta í síðu hári og það útfært og æft. Áfram er unnið með notkun og gerð verklýsinga. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þremur mismunandi formum á ísetningum og greiðslum, svo sem beint aftur, stjörnu- og múrsteinaupprúllum
  • viðeigandi hársnyrtiefnum og áhöldum við ísetningu og greiðslu
  • gerð og notkun verklýsinga fyrir hárgreiðslu
  • mismunandi formum á bylgjugreiðslum
  • notkun bylgjugreiðu og klípa


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skipta hárinu upp í fyrirfram ákveðnar brautir
  • setja ýmsar stærðir af rúllum í misjafna sídd af hári
  • túbera og greiða úr mismunandi upprúllum á æfingahöfðum
  • greiða fjórar blautbylgjur upp frá einni ásamt þurrkun og úrgreiðslu
  • gera klípuupprúll á æfingahöfði þannig að út komi fjórar bylgjur ásamt þurrkun og úrgreiðslu


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipta, rúlla upp og forma hár með hliðsjón af útkomu, uppbyggingu og áferð greiðslu
  • notast við verklýsingar við gerð greiðslna