HÁRG2FB03 - Hárgreiðsla 4

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandi þjálfast í að hanna og útfæra hárgreiðslur miðað við mismunandi hárlengdir sem hæfa viðskiptavini við ýmis tækifæri, bæði dag- og kvöldgreiðslur. Nemandinn kynnist mismunandi tímabilum í sögu hársins og lærir að útfæra greiðslur eftir ljósmyndum og tímaritum. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ýmsu upprúlli
  • úrgreiðslum miðað við fyrirhugaða útkomu
  • mismunandi stíl og stílbrigðum
  • áhöldum og efnum sem notuð eru við hárgreiðslur


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útfæra greiðslur fyrir mismunandi hárlengdir
  • móta hár með rúllum, járnum, nálum og klípum
  • nota viðeigandi hárskraut
  • útfæra mismunandi bylgju-og tímabilagreiðslur
  • móta blautbylgjur í mismunandi útfærslum
  • nota samfélagsmiðla til hugmyndavinnu og kynninga
  • vinna samkvæmt verklýsingu


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útfæra ólíkar hárgreiðslur fyrir mismunandi hárgerðir og hárlengdir
  • nota verklýsingu sem hjálpartæki í hárgreiðslu
  • kynna hugmyndir sínar fyrir ýmsa vegu
  • ganga vel um vinnusvæði og gæta öryggis og hreinlætis