HÁRG1GB02 - Hárgreiðsla 1

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Nemandinn kynnist hugmyndum, tækni og aðferðum á bak við mótun hárs með rúllum, klípum og hverskonar hitatækjum. Hann lærir og fær þjálfun í grunnatriðum við ísetningu á rúllum og klípum og mótun blautbylgja Kennd er notkun á krullu og hitajárnum auk beitingar rúllubursta við dömublástur og gerð einfaldra fléttna og snúninga. Farið er í undirstöðuatriði í form og bylgjublæstri herra. Kennd er gerð og notkun verklýsinga. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi formuppbyggingu í greiðslum og blæstri·
  • mismunandi gerðum rúlluísetninga og úrgreiðslna
  • viðeigandi hármótunarefnum og áhöldum við ísetningu og greiðslu
  • gerð og notkun verklýsinga fyrir hárgreiðslu
  • mismunandi formum á bylgjugreiðslum
  • notkun bylgjugreiðu og klípa
  • notkun hárblásara og mismunandi tegunda af burstum
  • einfaldri notkun hitajárna til hármótunar
  • einföldum fléttum og snúningum í sítt hár


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera grunnskiptingar fyrir upprúll
  • skipta hárinu upp í fyrirfram ákveðnar brautir
  • setja ýmsar stærðir af rúllum í
  • misjafna sídd af hári
  • túbera og greiða úr mismunandi
  • upprúllum á æfingahöfðum
  • gera klípuupprúll á æfingahöfði auk úrgreiðslu
  • blása dömuhár í mismunandi form
  • nota viðeigandi bursta, greiður og mótunarefni
  • gera einfaldar fléttur og snúninga
  • handleika hitajárn


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipta, rúlla upp og forma hár með hliðsjón af útkomu
  • uppbyggingu og áferð greiðslu
  • notast við verklýsingar við gerð greiðslna
  • beita saman blásara, bursta og greiðu
  • halda á greiðu á sama tíma og rúllað er upp
  • taka skiptingar í samræmi við spólustærð og fyrirhugaða útkomu
  • krulla og slétta hár