GRTE1FF05 - Grunnteikning 1

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum.  Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti auk æfinga í teikniskrift.  Í fyrri efnisþættinum er fjallað um fallmyndun I og ásmyndun- og fríhendisteikningu í þeim seinni.  Í áfanganum öðlast nemendur færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestur teikninga og fá grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga.  Áfanginn er jafnframt undirbúningur fyrir frekara nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og gerð einfaldra þrívíðra teikninga og fríhendisteikninga
  • nákvæmum vinnubrögðum og notkun á teikniáhöldum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera undirbúinn undir frekara nám í teiknifræðum
  • hafa þekkingu og færni til að skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt