GLÚT2HH08 - Gluggar og útihurðir

Undanfari : TRÉS1VT08
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er kennd smíði glugga og útihurða með áherslu á trésamsetningar, vélavinnu og handverk. Nemendur læra um viðartegundir og önnur smíðaefni sem notuð eru í glugga og útihurðir, áhöld og tæki, samsetningaraðferðir, yfirborðsmeðferð og smíðisfestingar. Lögð er áhersla á að nemendur geti gengið úr skugga um gæði þeirra smíðaefna sem unnið er með og að endanlegur smíðishlutur uppfylli kröfur um málsetningar og útlit. Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í notkun og umgengni við allar algengar trésmíðavélar og kynnast flóknari vélbúnaði sem sérstaklega tengist glugga- og hurðasmíði. Kennsla er að mestu verkleg þar sem nemendur smíða hluti eftir teikningum og verklýsingum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • umgengni og notkun trésmíðavéla fyrir glugga og hurðasmíði
  • vali efna til glugga og hurðasmíða
  • smíðaefnum sem notuð eru við gerð glugga og útihurða
  • eiginleikum viðar og plötuefnis með tilliti til endingar
  • áhöldum og vélum sem notuð eru við smíði glugga og útihurða
  • samhengi milli snúnings-, skurðar- og mötunarhraða og yfirborðsgæða
  • öryggisreglum og öryggisbúnaði viðkomandi áhalda og tækja
  • samsetningaraðferðum á gluggum og útihurðum
  • helstu efnissamsetningum sem notaðar eru í gluggum og hurðum
  • límtegundum og límhörðnunarkerfum fyrir mismunandi viðartegundir
  • samlímingu á tré sem notað er til að smíða bogna og beina íhluti
  • öryggisreglum og öryggisbúnaði sem snertir lím og meðferð þess
  • yfirborðsmeðferð glugga og útihurða
  • aðferðum til að fúaverja og yfirborðsmeðhöndla glugga og útihurðir
  • gagnvörn smíðaviðar og efnum til yfirborðsmeðferðar
  • öryggisreglum og öryggisbúnaði við fúavörn og yfirborðsmeðferð
  • öryggisþáttum og viðhaldi trésmíðavéla
  • vinnuaðstöðu og vinnumhverfi
  • smíði boginna íhluta og glugga með skapalóni eða CNC-vél


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna eftir teikningum og verklýsingum fyrir glugga- og hurðasmíðar
  • nota málma og plast við smíði glugga og útihurða
  • brýna og halda við einföldum skurðarverkfærum
  • nota og halda við áhöldum, rafmagns- og lofthandverkfærum
  • umgangast flóknar trésmíðavélar með tillit til notkunar og öryggismála
  • lesa merkingar og flokka efni með tilliti til útlits og styrk


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja hentugt smíðaefni með hliðsjón af verkefni hverju sinni
  • öðlast innsýn í tæknilega viðarvernd við smíði útiglugga og útihurða
  • velja smíðisfestingar og þéttilista með hliðsjón af verkefni
  • velja réttar trésmíðavélar bæði til fjölda- og stykkjaframleiðslu
  • velja skurðarverkfæri og skurðarhorn út frá viðartegund
  • velja verkfæri og skurðarhorn til vinnslu samsíða og þvert á trefjastefnu
  • ganga úr skugga um rétta virkni og stillingar véla með aðstoð mæliáhalda
  • velja límáburðartæki, þvingur og pressur fyrir glugga- og hurðasmíði
  • velja slípi- og málningarkerfi fyrir mismunandi viðartegundir
  • smíða glugga og útihurðir með þéttingum og fylgihlutum
  • smíða fasta og opnanlega glugga til notkunar utan- og innanhúss
  • smíða útihurð með spjöldum ásamt karmi og stáli
  • smíða skapalón með hliðsjón af hönnunargögnum
  • ganga frá smíðishlut með gleri, þéttilistum og stáli
  • staðsetja og taka úr fyrir lömum og skrám í höndum og með vélum