FRVV1FB05 - Framkvæmdir og vinnuvernd

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um bygginga- og mannvirkjagerð með áherslu á verkferli og öryggismál. Nemendur læra um undirbúning og upphaf framkvæmda, hlutverk og ábyrgð einstakra fagstétta, skipulag og stjórnun á vinnustað, samstarf og samskipti, áætlanagerð og gæðastýringakerfi. Kennd er rétt líkamsbeiting, notkun hlífðarbúnaðar, meðferð hættulegra efna, umgengni við rafmagn og farið yfir notkun hjálpartækja og búnaðar við mismunandi verk. Að lokum er gerð grein fyrir námsleiðum í bygginga- og mannvirkjagreinum á framhalds- og háskólastigi.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hefðbundnu byggingaferli frá hugmynd til lokaúttektar
  • hafi þekkingu á skipulagi öryggismála og fyrirbyggjandi aðgerðum
  • þekki grundvallaratriði hollustuhátta og vinnuverndar


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að greina- og bregðast við þeim hættum sem vinna í mannvirkja- og byggingargreinum felur í sér


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta veitt slösuðum eða veikum einstaklingi aðstoð á vettvangi