FRLA3RB05 - Forritanleg raflagnakerfi 2
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegu hússtjórnarkerfi og búnaði sem samþykktur er af KNX samtökunum. Farið er uppbyggingu á KNX hússtjórnarkerfi ásamt skipulagi teikninga og annara tæknilegra skjala til undirbúnings hönnunar og forritunar á búnaði. Farið er í virkni einstakra íhluta KNX kerfis og forritunarskrár sóttar á heimasíðu framleiðenda ásamt tæknilegum skjölum til að forrita búnaðinn. Búnaður er settur upp í ETS forriti þar sem parametrar eru stilltir og búnaður tengdur saman á viðeigandi hátt. Nemendur tengja búnaðinn ásamt því að hlaða niður forritun og virkja búnað. Farið er í virkni einstakra íhluta og þeir tengdir og forritaðir þannig að nemendur fái þjálfun í að vinna sjálfstætt við uppsetningu og virkjun búnaðar og séu færir um að leiðbeina öðrum um notkun þess. Nemendur tengja saman KNX, DALI og Funk-bus við lausnir verkefna. Farið er í birtu og hitastýringar þar sem áhersla er lögð á viðveru í rýmum og orkusparnað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu möguleikum forritanlegra hússtjórnarkerfa
- íhlutum hússtjórnarkerfa og vera fær um að tengja og virkja búnaðinn
- möguleikum á samtengingu mismunandi hússtjórnarkerfa við lausn verkefna
- frágangi tæknilegra skjala og teikninga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skipuleggja og ganga frá skjölum ásamt lagnateikningum hússtjórnarkerfa
- tengja og ganga frá búnaði
- forrita og virkja búnað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- ráðleggja verkkaupa um uppbyggingu á KNX forritanlegu hússtjórnarkerfi og útskýra virkni einstakra íhluta við lausnir verkefna
- blanda saman KNX, DALI og Funk-bus hússtjórnarkerfi við lausnir verkefna. Forrita búnað þar sem lögð er áhersla á orkusparnað í upphitun rýma og birtustýringar