FRLA3RA05 - Forritanleg raflagnakerfi 1
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegum hússtjórnarkerfum. Farið er uppbyggingu á DALI og Funk-bus hústjórnarkerfum og hönnun þeirra. Nemendur læra uppsetningu kerfa ásamt efnisvali og möguleikum búnaðar til stjórnunar rafkerfa í flestum tegundum bygginga. Farið er í virkni einstakra íhluta og þeir tengdir og forritaðir þannig að nemendur fá þjálfun í að vinna sjálfstætt við uppsetningu og virkjun búnaðar og séu færir um að leiðbeina öðrum um notkun hans. Nemendur læra á viðeigandi forrit til að virkja búnaðinn ásamt frágangi á tæknilegum skjölum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu möguleikum forritanlegra hússtjórnarkerfa
- íhlutum hússtjórnarkerfa og vera fær um að tengja og virkja búnaðinn
- möguleikum á samtengingu mismunandi hússtjórnarkerfa við lausn verkefna
- frágangi tæknilegra skjala og teikninga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skipuleggja og ganga frá skjölum ásamt lagnateikningum hússtjórnarkerfa
- tengja og ganga frá búnaði
- forrita og virkja búnað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- ráðleggja verkkaupa um uppbyggingu mismunandi forritanlegra hússtjórnarkerfa og útskýra virkni einstakra íhluta við lausnir verkefna