FATA3KJ05 - Fatahönnun - Kjólasaumur
Undanfari : FATA2SH05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Lögð er áhersla á mikilvægi hönnunar í efnis-, snið-, munstur- og litavali. Einnig er fata- og stílsagan höfð til viðmiðunar. Nemandi lærir að tengja máltöku við vaxtar- og stærðarval auk sniðbreytinga, ásamt því að kynnast fjölbreytni sniða og samræmingu milli vals á efni og sniðum. Megináhersla er lögð á útfærslu hugmynda yfir í sniðteikningu og prufuflík að fullunnu verki. Nemandi vinnur skissubók, útbýr vinnuskýrslu með útskýringum á vinnu sinni frá prufu að fullgerðum kjól. Lögð er áhersla á skapandi hugsun, frumkvæði og frumleika. Einnig eiga nemendur að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og þjálfa hæfni til að tjá sig og rökstyðja verkefni sín.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- forsendum skapandi hugsunar í hönnun á fatnaði
- forsendum hönnunar hvað varðar reynslu, notkun, sögu og hefðir
- mikilvægi undirbúnings-, tilrauna- og rannsóknarvinnu með öflun og úrvinnslu upplýsinga
- forsendum hugmyndavinnu, framkvæmdar og framvindu að fullunnu verki
- mismunandi útfærslu sniða og muninum á fjöldaframleiddum og sérsaumuðum fatnaði
- leiðbeiningum í máli og myndum varðandi sniðútfærslur og saumtækni
- sambandinu milli sjálfstæðra, faglegra og skapandi vinnubragða og vinnuframlags
- mikilvægi þess að koma vinnu sinni á framfæri og rýna í eigin verk og annarra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna vandaða hugmyndavinnu með öflun og úrvinnslu upplýsinga
- skilgreina forsendur og þörf og endurmeta hugmyndir sínar
- temja sér frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun
- útfæra sniðbreytingar út frá eigin hugmyndum
- útfæra eigin hugmynd í formi tísku- og útlitsteikninga
- útfæra sniðbreytingar út frá eigin hugmyndum
- temja sér sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti
- auka færni í að máta og nota gínu við lagfæringu sniða
- vinna með óhefðbundin efni og þekkja eiginleika þeirra
- tileinka sér saumtækni og kunnáttu í straujun og pressun
- að endurmeta framkvæmd verksins á öllu vinnuferlinu
- temja sér öguð og vönduð vinnubrögð við frágang verkefna
- útbúa (vinna) hugmynda- og vinnumöppu í máli og myndum
- kynna eigin verk og taka þátt í sýningu
- rýna í eigin verk og annarra með uppbyggilegri gagnrýni
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta nýtt sér upplýsingatækni og aðra miðla við hugmyndavinnu ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- vera fær um að taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- tileinka sér vinnuferlið frá hugmynd að fullgerðri flík ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- kunna skil á forsendum hönnunar hvað varðar nýsköpun í formi tilrauna, rannsókna og úrvinnslu upplýsinga ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- fylgja eftir skipulögðu vinnuferli miðað við tímaþátt, endurmat og framkvæmd verksins ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- sýna frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- koma vinnu sinni á framfæri í formi kynningar eða sýningar ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
- rýna í eigin verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega á uppbyggilegan hátt ...sem er metið með... verkefnum og sýningu