ESÞJ3VL05 - Einka- og styrktarþjálfun - Þjálfarinn og starfsumhverfið
Undanfari : VOHR2VF05, VOHR3VF10 og SÁLF3ÍÆ05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í þessum áfanga er fjallað um þætti einka- og styrktarþjálfarastarfsins sem snúa að samskiptum við skjólstæðinga, starfsvettvangi, og ímynd þjálfara. Starfsumhverfi einka- og styrktarþjálfara er kynnt fyrir nemendum þannig að þeir geri sér grein fyrir ólíkum áherslum innan þess. Farið er yfir viðeigandi framkomu einka- og styrktarþjálfara við skjólstæðinga sem og siðareglur þjálfara. Megin hluti áfangans er vettvangsnám þar sem nemendur þjálfa skjólstæðinga undir leiðsögn kennara. Nemendur öðlast því verklega færni í sjálfstæðum og faglegum vinnubrögðum við þjálfun og ráðleggingum til skjólstæðinga. Áætlaður tímafjöldi í vettvangsnámi er 75 klst.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnuaðstæðum á heilsuræktarstöðvum og fjölbreyttu starfsumhverfi þjálfara
- störfum einka- og styrktarþjálfara og mikilvægi menntunar og framþróunnar innan greinarinnar
- vinnuvernd og mikilvægi öryggisferla á vinnustað
- mikilvægi þess að gæta þagmælsku, sýna ábyrgð og traust í samskiptum við skjólstæðinga
- siðareglum einka- og styrktarþjálfara
- hvað einkennir fyrirmyndar framkomu einka- og styrktarþjálfara
- viðeigandi samskiptareglum, líkamstjáningu og staðsetningu þjálfara m.t.t. skjólstæðings
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig og útskýra þekkingu sína fyrir skjólstæðingum
- skipuleggja vinnu sína
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta hvenær þörf er á að vísa skjólstæðingum til læknis
- rökstyðja leiðbeiningar fyrir skjólstæðinga
- sýna skjólstæðingum skilning, aðgát og nærgætni
- starfa sjálfstætt og leggja mat á eigið vinnuframlag
- leggja mat á eigin líðan í starfi
- stýra þjálfun einstaklinga