ESÞJ3HS10 - Einka- og styrktarþjálfun - Hraða- og styrktarþjálfun
Undanfari : VOHR2VF05, VOHR3VF10 og ÍÞLE3ÞÍ05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í þessum áfanga verður farið í hvernig efla má hraða, sprengikraft og styrk íþróttafólks. Farið verður í tækni á þar til gerðum æfingum, þarfagreiningar, afkastagetumælingar og þjálfunaráætlanir. Farið verður yfir tækni í ólympískum lyftingum, kraftlyftingum, hraða og snerpuþjálfun og hvernig þessar æfingar geta nýst iðkendum í ólíkum íþróttagreinum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hugtökum þjálffræðinnar sem tengjast styrktar- og hraðaþjálfun
- mismunandi kröfum sem ólíkar íþróttagreinar gera til líkamlegrar afkastagetu iðkenda
- þekki ólíkar æfingar tengdar styrktar- og hraðaþjálfun
- helstu aðferðum við afkastagetumælingar
- grundvallaratriðum við gerð þjálfunaráætlana
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útbúa ólíkar þjálfunaráætlanir fyrir íþróttafólk
- miðla þekkingu varðandi framkvæmd æfinga
- framkvæma æfingar tengdar hraða- og styrktarþjálfun
- miðla upplýsingum um þjálfunaráætlanir til skjólstæðinga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra og kenna æfingar tengdar styrktar- og hraðaþjálfun
- rökstyðja uppbyggingu þjálfunaráætlana
- gera sér grein fyrir ólíkum þörfum mismunandi íþróttagreina við gerð þjálfunaráætlana
- meta álag og umfang lyftingaþjálfunar
- tengja saman niðurstöður þarfagreininga og afkastagetumælinga við þjálfunaráætlanir
- gera sér grein fyrir heildarþjálfunarálagi á viðkomandi íþróttaiðkanda