ENSK3HK05 - Enska - Handrit og kvikmyndagerð
Undanfari : ENSK2GA05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Öll kennsla í áfanganum fer fram á ensku og verkefnin eru á ensku. Í áfanganum er þjálfaður enskur orðaforði sem tengist kvikmyndagerð vinnubrögðum við hana. Farið verður í gegnum öll helstu kvikmyndaformin. Teknar eru fyrir nokkrar kvikmyndir, þær rýndar og skilgreindar út frá ýmsum þáttum kvikmyndagerðar. Nemendur þjálfa sig í skrifum á handriti á ensku sem er síðan notað sem grunnur að lokaverkefni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- enskum orðaforða sem tengist kvikmyndagerð
- hvað aðgreinir hin ýmsu kvikmyndaform
- helstu aðferðum við handritsskrif
- kenningum og vinnubrögðum sem tengjast handritaskrif og kvikmyndagerð
- myndmáli kvikmyndanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna eftir handriti
- skrifa handrit á ensku
- greina táknmál kvikmynda
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka upp stuttmynd
- greina dramatíska uppbyggingu kvikmyndar
- skrifa eigið handrit á ensku með trúverðugum samtölum og persónum