ENSK3AE05 - Enska - Almenn akademísk enska, bókmenntir og ritun
Undanfari : ENSK2GA05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum lesa nemendur ýmiss konar fræðitexta og vinna með þá í mæltu og rituðu máli. Einnig lesa þeir margs konar bókmenntir. Áframhaldandi áhersla er á ritun, ritunaraðferðir, röksemdafærslu, uppsetningu ritgerða og frágang. Auknar kröfur eru gerðar um sjálfstæði nemenda
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar á háskólastigi
- merkingu texta sem hefur samfélagslegar og fræðilegar skírskotanir
- þeirri notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að standast hæfniviðmið þrepsins
- helstu aðferðum við að skipuleggja og skrifa fræðilegan texta á ensku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja sérhæfða texta um málefni sem hann þekkir og þekkir ekki
- skilja almennt talað mál og fyrirlestra um tiltekin málefni á ensku
- lesa texta sem gera miklar kröfur til lesandans hvað varðar orðaforða, uppbyggingu og myndmál sér til ánægju og upplýsinga
- nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan máta
- beita ritmáli í mismunandi tilgangi
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni á ensku og nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur áhuga á, þekkir eða getur aflað sér þekkingar á
- leggja gagnrýnið mat á texta
- beita málinu til að geta tekið fullan þátt í umræðum um ýmis mál
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
- vinna úr heimildum og skrá þær viðurkenndan hátt
- skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta sem tekur mið af lesanda
- vinna og flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu, ritgerð eða greinargerð og draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt
- tjá tilfinningar og nota hugarflugið í rituðu máli