ENSK2GA05 - Enska - Grunnorðaforði akademískra texta
Undanfari : ENSK2KO05 (krefjandi orðaforði)
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áhersla er lögð á að nemendur verði enn betur læsir á fræðilega texta. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða akademískra texta, tjá hugsun sína skýrt í riti og rökstyðja skoðanir sínar. Í fyrirrúmi er vandlegur lestur texta með það fyrir augum að byggja upp skilning og hagnýtan orðaforða. Lesið er bókmenntaverk úr hinum enskumælandi menningarheimi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- menningu, viðhorfum og gildum í tilteknum enskumælandi löndum
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að standast hæfniviðmið þrepsins
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að standast hæfniviðmið þrepsins
- helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja fjölbreytt mál sem talað er við mismunandi aðstæður
- lesa margs konar gerðir texta
- beita málfari við hæfi í samskiptum
- tjá sig vel um málefni sem hann hefur undirbúið
- skrifa margs konar texta, formlega og óformlega
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja talað mál hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
- tileinka og nýta sér efni ritaðs texta
- lesa texta og geta tjáð munnlega eða skriflega um efni þeirra
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt af tiltölulega mikilli nákvæmni
- skrifa læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti
- skrifa margskonar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem við eiga hverju sinni