ENSK1TÖ04 - Enska - Með áherslu á tölvuleiki (ST)
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með tölvuleiki sem kennarinn velur í samráði við nemendur og aðra fagaðila sem þekkja vel til. Nemendur skiptast á að spila leikina en allir fylgjast með og öll ný orð og hugtök eru skráð niður og lögð á minnið. Kennarinn velur leikina með það í huga að nemendurnir þurfi bæði að nýta sér ritun og lestur til þess að komast áfram í leiknum og samhliða eflir nemandinn ensku kunnáttu sína.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem kemur fram í tölvuleikjunum
- ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- kostum þess að vera vel læs á enska tungu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgja fyrirmælum sem koma fram í tölvuleikjum
- nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
- taka þátt í umræðum
- lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin hæfni í tölvuleikum
- efla eigið tölvulæsi
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í tölvuleikjum
- þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
- lesa í leik- og samskiptareglur
Áfangi á starfsbraut