ENSK1SF04 - Enska - Með áherslu á sagnfræði (ST)

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku á fjölbreyttan hátt eftir stöðu hvers og eins. Nemendur munu vinna verkefni og lesa texta sem tengjast nokkrum merkum atburðum í mannkynssögunni. Notað verður aldursmiðað efni við hæfi hvers og eins sem gefur innsýn í mannkynssöguna. Áhersla er á að námið verði áhugahvetjandi og að nemendur geti í leiðinni fræðst um og rifjað upp merka atburði í mannskynssögunni.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtakinu mannkynssaga
  • að sagan hefur áhrif á okkur öll
  • ólíkum æviskeiðum manna
  • mikilvægi tjáningar og hlustunar

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að reynsla forfeðra okkar getur nýst okkur í nútímanum
  • átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • að hægt er að nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
  • tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
  • taka þátt í umræðum

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • átta sig á mikilvægi þess að kunna skil á helstu þáttum mannkynssögunnar
  • virða reynslumeira og eldra fólk
  • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • taka þátt í umræðum um sögulega atburði

Áfangi á starfsbraut