EFNA2LM05 - Efnafræði - Lotukerfið og mólhugtakið

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Grunnhugtök, lotukerfið, mólhugtakið

Í áfanganum er farið í undirstöðuatriði efnafræðinnar og nemendur látnir vinna með grunnhugtök greinarinnar. Þeir þjálfast í meðferð hjálpargagna, s.s. lotukerfis, jónatöflu, töflu yfir auðleyst og torleyst sölt, rafdrægnigildi frumefna o.þ.h. Nemendur kynnast verklegum æfingum í efnafræði og þjálfast í þeim vinnubrögðum sem þar eru viðhöfð.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu atóma, jóna og sameinda
  • rafeindaskipan og mikilvægi hennar
  • flokkun efna, efnatáknum og helstu efnabreytingum
  • efnatengjum og áhrifum þeirra á eiginleika efna
  • helstu gerðum efnahvarfa
  • mólhugtakinu
  • nafnakerfi ólífrænna efna

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota hjálpargögn í efnafræði, s.s. lotukerfi, jónatöflu, rafdrægnigildi og virkniröð málma
  • rita og stilla efnajöfnur
  • beita mólútreikningum og hlutfallareikningi í efnahvörfum
  • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi
  • leggja rökstutt mat á eiginleika efna, s.s. ástandsform, hvarfhegðun o.fl. með aðstoð hjálpargagna
  • sjá notagildi efnafræðinnar og mikilvægi í raungreinum