EFNA2GE05 - Efnafræði - Gaslögmálið og efnahvörf
Undanfari : EFNA2LM05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Gaslögmálið, hraði efnahvarfa, orka í efnahvörfum
Í áfanganum er áfram unnið með undirstöðuþætti efnafræðinnar. Til viðbótar er fjallað um gaslögmálið og tengingu þess við mól- og massaútreikninga í efnahvörfum auk þess sem farið verður í orkubreytingar við efnahvörf, hraða efnahvarfa og jafnvægishugtakið kynnt. Áhersla er lögð á aukið sjálfstæði í verklegum æfingum og vinnubrögðum almennt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- gaslögmálinu og hagnýtingu þess í efnafræði og skyldum greinum
- orkuhugtakinu og orkubreytingum við efnahvörf
- helstu efnagreiningaraðferðum
- helstu drifkröftum efnahvarfa
- jafnvægishugtakinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita mól-, rúmmáls-, massa- og hlutfallareikningi í tengslum við efnahvörf
- greina óþekkt efnismagn t.d. með títrun eða söfnun gass
- beita einfaldri efnagreiningu
- reikna út hvarfhraða og orkubreytingar við efnahvörf
- setja upp og framkvæma verklegar æfingar og vinna markvisst úr niðurstöðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja rökstutt mat á gang efnahvarfa og áhrif utanaðkomandi þátta t.d. á hvarfhraða og jafnvægisstöðu
- vinna sjálfstætt að úrlausn efnafræðilegra viðfangsefna, bæði verklega og skriflega
- koma niðurstöðum rannsókna á framfæri með skilmerkilegum hætti bæði í ræðu og riti
- notfæra sér efnafræðina í öðrum raungreinum og hinu daglega lífi