Grunnáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Farið er almennt yfir búnað í Fab Lab smiðju og þá möguleika sem felast í notkun hans. Áhersla er lögð á að nemendur átti sig á hugmyndafræði Fab Lab og tileinki sér hana í vinnu í smiðjunni. Nemendur kynnast ýmsu forritum, sem henta til stafrænnar framleiðslu. Samhliða því að læra á tvívíð og þrívíð teikniforrit læra nemendur grunnatriði í notkun leiserskera, vínilskera og þrívíddarprentara.
Nemendur gera sína eigin frumgerð að vöru til framleiðslu og er mikil áhersla er á nýsköpun auk þess sem áhersla er lögð á virðingu fyrir hönnun annarra. Áhersla er lögð á vinnuferlið í verkefnum og gerð verklýsinga.
Þekkingarviðmið
- hugmyndafræði Fab Lab
- hugmyndavinnu og skissuteikningu
- nýsköpun, hugverkarétti og höfundarétti
- tvívíddar- og þrívíddarhönnun
- stafrænni framleiðslutækni og myndvinnslu
- raster og vektor myndum
- notkun þrívíddarprentara, vínylskera og hitapressu
- þrívíddarskönnun
- skrásetningu á vinnuferli
Leikniviðmið
- nota stafrænan tækjabúnað við hönnun
- setja upp frjálsan hugbúnað
- hanna í tvívíddar- og þrívíddarforritum
- útbúa rafræn skjöl fyrir tæki í Fab Lab
- nota leiserskera
- nota vínilskera og hitapressu
- skanna í þrívídd og prenta í þrívíddarprentara
- greina á milli vektor og raster mynda
- skrásetja vinnuferli
- framkvæma verkefni frá hugmynd til frumgerðar
- vinna skissu að frumgerð og kynna hana fyrir öðrum
Hæfnisviðmið
- útfæra hugmyndir sínar í teikniforritum; tvívíddar- eða þrívíddar eftir því sem við á
- nota þrívíddarskanna, vínilskera, leiserskera og þrívíddarprentara í hönnun
- lesa og vinna eftir leiðbeiningum
- þróa hugmyndir sjálfstætt og undir leiðsögn
- skrá ferli, meta og rökstyðja vinnu sína
- hanna, teikna og framleiða eigin afurð
Nánari upplýsingar á námskrá.is