Rötun, ferðaskipulag, kortalestur
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmiðið er að kynna þá náttúru og sögu sem Reykjanesið hefur uppá að bjóða. Stuttir fyrirlestrar þar sem farið verður yfir útbúnað í gönguferðum og á fjöllum, öryggisatriði í gönguferðum s.s. kennsla á áttavita/gps tæki og að lesa úr kortum og umgengni um náttúruna. Farið verður í fimm göngur á Reykjanesskaganum. Göngurnar eru mis langar og verða farnar á föstudögum eftir að kennslu lýkur eða á laugardögum. Til þess að standast áfangann þarf að mæta í 4-5 i göngur og skila göngudagbók eftir hverja ferð.
Þekkingarviðmið
- Klæðnaði sem hentar til útivistar í íslenskri veðráttu
- Öryggisatriðum í sambandi við fjallgöngur s.s. veðurspá, virkni áttavita og gps tækja
- Gönguleiðum á Reykjanesskaganum
Leikniviðmið
- Glíma við útiveru við mismunandi aðstæður
- Takast á við aðstæður sem reyna á þol og styrk
- Vinna saman, vera hvetjandi og sýna tillitssemi gagnvart öðrum göngufélögum
- Geta nýtt sér áttavita, kort og gps tæki
Hæfnisviðmið
- Meta eigið þol og styrk með tilliti til gangna
- Nota útivist sér til ánægju og heilsubótar
- Taka þátt í göngum og útivist við mismunandi aðstæður og veðurfar
- Útbúa sig varðandi nesti, klæðnað og annan útbúnað fyrir dags gönguferðir
Nánari upplýsingar á námskrá.is