Málun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnáfangi, enginn undanfari.
Í þessum grunnáfanga vinna nemendur á kerfisbundinn hátt með akrýl málningu ýmist á pappír eða striga. Lögð er áherla á að nemendur öðlist þekkingu á blöndunareiginleikum. Í litafræðinni kynnast nemendur grundvallaratriðum í meðferð lita þar sem þeir kanna samspil lita, virkni þeirra og áhrif. Í lokin vinna nemendur markvisst með fjölbreytta liti og litablöndun með það í huga að kanna möguleika sína á persónulegri tjáningu í málverki.
Verkefni útskýrð og lögð fyrir. Einstök heimaverkefni. Skissubók – nemendur vinna sjálfstætt í skissubók heima og í tímum. Nemendur fari a.m.k. einu sinni á myndlistarsýningu og skila verkefni um sýninguna.
Þekkingarviðmið
- Blöndun grunnlita í litatóna og hugtökum þar að lútandi
- Að beita litum á fjölbreyttan hátt á ýmis konar efni
- Tóni, blæ, ljósmagni og litablöndun
- Nýtingu litaskalans á áhrifaríkan hátt í einföldum myndum
- Greiningu áhrifa lita og litasamsetningar í mismunandi samhengi
- Greiningu með vísan til táknfræði, á hvaða möguleg áhrif samsetning lita og forma getur haft
- Kenningum/lögmálum litafræðinnar, litahringnum, andstæðum litum, heitum og köldum litum
- Litgreiningu
- Áhrifum ljóss og skugga á liti
- Blæbriðgum litar
- Einlit
Leikniviðmið
- Blanda liti og ná fram mismunandi tónum
- Nýta sér hin ýmsu efni til myndlistar
- Leita sér heimilda og nýta sér þær
- Beita lögmálum litafræðinnar við blöndun lita
- Finna og greina liti í umhverfinu
- Sjá andstæða liti í skuggum
- Framkvæma tilraunir og setja þær fram á frambærilegan og persónulegan hátt
Hæfnisviðmið
- Geta blandað hvern þann lit sem hann finnur í umhverfi sínu
- Nýta sér lögmál andstæðra lita; hvernig þeir vinna saman og hafa örvandi áhrif á virkni hver annars
- Nýta áhrif litar á myndbyggingu og áhrif á rýmiskennd
- Geta greint mismunandi litbrigði í einföldum lit
Nánari upplýsingar á námskrá.is