Framendi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: VFOR2GR05
Haldið verður áfram að vinna í forritunarmálinu Javascript til að búa til gagnvirkar vefsíður. Farið verður dýpra í forritunarmálið og nemendur fá að kynnast Javascript ramma (e. framework) til að hanna vefsíður. Unnar verða vefsíður með notkun ramma þar sem vefsíður eru skiptar niður í minni hluta (e. component). Nemendur munu nota forritasafn til að ná í gögn af netinu og birta það á vefsíðunni hjá sér. Kynnt verður fyrir nemendum grunnatriði í Git og hvernig það einfaldar utanumhald utan um verkefni.
Þekkingarviðmið
- Flóknari hlutum í Javascript
- Grunnatriði í ramma (e. framework) í Javascript
- Notkun minni hluta (e. component) á vefsíðum
- Grunnatriðum í Git
Leikniviðmið
- Forrita flóknari hluti í Javascript
- Forrita vefsíðu með ramma (e. framework)
- Hanna vefsíðu í minni hlutum (e. components)
- Geyma verkefni á vefþjónustu með Git
Hæfnisviðmið
- Búið til vefsíðu frá grunni sem birtir gögn af netinu
- Búið til gagnvirka vefsíðu sem nær í og uppfærir gögn
- Vinna verkefni í hópum í gegnum vefþjónustu með Git
Nánari upplýsingar á námskrá.is