Róbótafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FORR3PH05
Nemendur munu setja upp sínar eigin Raspberry PI vélar sem þeir munu svo nota til að stjórna mótorum, ljósnóðum og fleiru.
Við munum setja vélina í fjarstýrðan bíl, og getur vélin þ.a.l. stjórnað bílnum. Við munum svo skrá okkur inn í vélina í gegnum aðra Raspberry PI tölvu með notkun SSH. Þar með stjórnum við bílnum fjarrænt í gegnum internetið. Nemendur munu læra að búa til Python scriptur sem geta greint hvað það er sem bíllinn er að sjá sem og tekið ákvarðanir fyrir bílinn byggðar á því.
Þekking í Linux og Python nýtist vel í þessu námskeiði.
Þekkingarviðmið
- Tölvukerfum almennt
- Linux
- Þróun róbóta
Leikniviðmið
- Skrifa tölvuforrit sem stjórna vélum
- Setja saman vélar
Hæfnisviðmið
- Þróa vélmenni framtíðarinnar
- Sjá tækifæri í kringum þessa nýju tækni
- Vera virkur þáttakandi í sjálfvirknivæðingunni sem blasir við
Nánari upplýsingar á námskrá.is